Nú styttist í heilbrigðisþingið 2020, sem haldið verður þann 27. nóvember n.k. Viðfangsefni þingsins er mönnun, menntun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu.
Þingið er liður í vinnu við gerð þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um stofnun sérstaks ráðs á landsvísu um þessi mál. Þingið verður rafrænt og stendur frá kl. 8.30–12.00. Skráning þátttöku fer fram á vefnum heilbrigdisthing.is og þar eru jafnframt upplýsingar um fyrirlesara og aðgengilegar skýrslur sem varða efni þingsins.
Þetta er þriðja heilbrigðisþingið sem ráðherra efnir til í þeim tilgangi að styrkja stoðir heilbrigðiskerfisins og efla heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Umfjöllunarefnið í ár er í samræmi við óskir og áherslur þeirra fjölmörgu sem tóku þátt í þinginu í fyrra, samkvæmt niðurstöðu rafrænnar könnunar sem lögð var fyrir gesti þingsins.
Sjá nánari umfjöllun um þingið á vef Stjórnarráðs Íslands.
Guðjón Hauksson forstjóri HSA verður með erindi á þinginu kl. 10:40 – Er ég sjúkur eða frískur? Hvað segir fagmaðurinn?