Heimsóknartakmarkanir verða á sjúkradeild Umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað þannig að hver sjúklingur má fá einn gest daglega í 1 klst. Á hverri sjúkrastofu er einungis einn gestur í einu. Heimsóknartímar frá kl. 16-19. Gestir koma inn að ofan og hringja dyrabjöllu.
ATHUGIÐ að gestir mega EKKI koma í heimsókn ef þeir:
a. Eru í sóttkví.
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).
c. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.
e. Ef aðstandandi hefur verið í útlöndum s.l. 14 daga
Með vinsemd og virðingu
Framkvæmdastjórn HSA.